|
|
21.08.2006 20:23:37 / nuna
»
23.07.2006 22:56:46 / nuna
Þessi
helgi er búin að vera alveg ágæt.. Guðmunda kom á föstudeginum í
bæinn, við fórum út um níu og vorum úti alveg í svolítin tíma að
spjalla.. við hringdum svi í Hrólf og óla og báðum ða koma út..
Hrólfur kom bara því óli var að horfa á e-a grínmynd, Hrólfur
ætlaði ekki fyrst að koma út en Guðmunda liggum við öskraði á
hann og sagði honum að koma út.. Við vorum úti til e-ð hálf 12.
Þegar ég kom inn, fór ég að ná mér í ís og nammi og fór að
horfa á friends í svona milljónasta skiptið, og setti líka
myndir inn á nýju fartölvuna mína Ég horfði á tv í e-ð 2 – 3
tíma og fór svo að sofa.. Ég vaknaði svo um 12 leytið á
laugardeginum. Ég fór fram og fékk mér muffins og kókómjólk og
fór inn í herbergi og kveikti á friends og á tölvunni, en hún
varð e-ð biluð, þannig við þurfum að fara með hana í viðgerð á
mánudaginn.. bömmer =( ég fór síðan út með mundu um hálf fjögur
og fórum á róluvöllinn og biðum þar eftir Hrólfi.. Munda fann
smokk í kastalanum og fór næstum í hláturskast (má segja), við
tókum eða reyndar ég tók grass sem var nýbúið að slá og tók
smokkinn og henti honum e-t útí buskan þegar Hrólfur kom,
vorum við bara að spjalla í svona klst., en svo stungum ég
ogmunda Hrólf af en svo stakk hann okkur af.. Við hlupum 2 um
túnið í hláturskrampa, þegar við vorum að labba framhjá einni
blokkinni þá voru e-r gaurar sem flautuðu á okkur svo við hlupum
eins hratt og við gátum og hlógum ennþá meira =D Þegar við komum
yfir hólinn rétt hjá írabakka, sáum við Gísla, Sigga, Ásgeir og
Davíð vera labba
e-ð... Munda
talaði e-ð við þá og síðan fórum við inn á ganginn hennar og hittum
Hrólf á leiðinni inn.. Við fóru síðan inn til Mundu og vorum þar
til eitt.. og svo þurfti ég nátturulega að hlaupa heim, ég ser sko
shitt hrædd að labba ein seint um kvöld =S en ég hljóp eins hratt
og ég gat heim og ég var komin heim á 20 sekundum því ég var svo
hrædd =/ þegar ég kom heim hjálpaði ég mömmu að setja mynd í dvd
spilarann og fór inn til mín að horfa á friends eins og alltaf.. og
fór svo að sofa ca. 2 – 3 tímum eftir a’ ég kom heim.. og svo
vaknaði ég klukkan tvö í dag.. og ég var bara með mömmu næstum
allan daginn.. ég fór með henni í Smárann og keypti för handa litlu
stelpunni hennar Hrafndísar.... ég fór svo með mömmu yfir til
Hrafndísar eftir mat, ég helt á litlu í svolitla stund.. hún fíor
alveg í kerfi og gretti sig á fullu þega ég var með gleraugun á
mér, svo ég tók þau af mér og þá var hún sáttari við.. en svo fór
hún aftur að gráta.. Þega ég kom heim fór ég að horfa á Monk og
cold case og fór svo í tölvuna.. og þið vitið framhaldið.. ég veti
ekki ef fólk skoðar ennþá þessa síðu, en ef þið kikið.. endilega
kíkiði þá á söguna mína.. Lífið í einni buna =) bæbæ
»
12.07.2006 19:14:15 / nuna
Eins og þið
vitið þá er litla frænkan mín komin í heiminn ég er ógeðslega
ánægð, hún er svo krúttleg Hún fæddist þann 11/06 2006 kl:
09:08, hún var 12 merkur og 48 cm. Hún er alveg eins og Dóri
nema fyrir utan nefið og efri vörina það er eins og hrafndís

í gær þá
vaknaði ég klukkan 7 þegar mamma vakti mig og bað mig að fara út
með Amor ég sagði við hana ,,Ég fer ekki í vinnuna!” þannig mamma
leyfði mér að sleppa og lofaði að hringja í Kalla.. Þegar ég kom
inn eftir að hafa farið út með Amor, gaf ég honum að borða og líka
kisu. Svo fór ég að sofa og vaknaði ekki fyrr en 10 mín. yfir 9
þegar mamma hringdi aftur og sagði að litla frænka mín hafði komið
í heimminn fyrir 2 mínútum ég var auðvitað mjög ánægð, en ég fór
aftur að sofa og vaknaði ekki aftur fyrr en um 12 þegar mamma
hringdi aftur og sagðist vera á leiðinni.. Og þá fór ég á fætur.
Svo klukkan tvö fórum viðá spítalan til Hrafndísar og
Dóra. Ég fékk að halda
á litlu skvís, og ég grét þegar ég hélt á henni
en svo í
seinna skiptið þá grét ég ekki.. Við vorum þarna í klukkutíma
síðan fórum við í acatvis, því mamma var að skúra. Ég var
bara í tölvunni á meðan. Mamma og pabbi voru að skúra í 2 – 3
tíma, og eftir það fórum við aftur á spítalann til þeirra
aftur og vorum þar í hálftíma.. Síðan fórum við heim og
fengum okkur að borða.. Eftir mat fór ég með Amor út og fór
yfir til Hrafndísar og Dóra og tók til voða fínt fyrir þau,
en svo fór ég heim og fór í tölvuna, horfði á sjóbvarpið og
fór að sofa upp úr 12... og vaknaði ég kl: 07:00 í dag og fór
niðrí mjódd og tók rútuna í Hei’ðmörk og fór að vinna  
=)=)=)
»
11.07.2006 13:04:39 / nuna
»
09.07.2006 18:11:30 / nuna
Nú er komin
sunnudagur og ég er að mygla .. ég vaknaði klukkan 12 í morgun,
langaði að sofa lengur en gat það ekki. Afmælið hans pabba var í
gær, það var alveg ágætt. Var samt ekki allan
tímann..
Svona var
Laugardagurinn :
Ég vaknaði
klukkan 9 til þess að fara út með Amor, því ég lofaði mömmu því.
Þegar ég kom inn fór ég aftur upp í rúm og gat sofanð aftur í 5
mín. Ég fór þá bara fram og gaf Amor og kisu að borða og fór svo að
horfa á friends. Hrafndís kom um 11, ég fór þá að taka til í
herberginu mínu, því mama og pabbi voru að fara versla og Hrafndís
var að laga barnaland síðuna hennar Bryndísar. Ég var í klukkutíma
til 2 að taka til í herberginu, svo ég fór ekki að ryksuga ganginn
fyrr en um 2. Inga,Snorri, Alexander, tvíburarnir, Sól
Dögg,Bryndís,Junior og Lovísa komu klukkan 4 eða e-ð. Inga kom með
lítinn hund sem hún hafði fengið gefins, hann pissaði útum allt, en
Amor pissaði yfir það til þess að merkja það sem hann átti. Heiða
systir kom um hálffimm með strákinn sinn og kærastann og barnið
hans. Inga, Snorri og krakkarnir fóru um 5 því þau voru að fara í
sumarbústað. Pabbi hafði fengið græjur frá þeim sem hann notaði í
afmælinu. 
Ég fór út með Amor til þess að losna frá þeim í smá tíma og svo fór
ég í sturtu. Ég, pabbi, mamma, Dóri og Hrafndís fórum út að borða
áður en afmælið byrjaði. Ég og mama fengum okkur nautakjöt sem var
svo sterkt að ég fann svo til í eyranu og munninum. Eftir matinn
skutluðum við pabba heim og ég og mama fórum í okkar bíl og
kláruðum að versla. Ég fekk að taka mér spólur á leigu, því ég
ætlaði ekki að vera allan tímann í afmælinu. Gestirnir komu um 8
svo bættust alltaf fleiri og fleiri við. Ég fór stundum fram til að
kíkja, sumir voru orðnir fullir en sumir voru bara búnir að drekka
pínu. Mamma bað mig um að hjálpa sér að setja tómu bjórflöskurnar
inn í búr. Pabbi setti Tom Jones á og allir byrjuðu að syngja á
fullu og hækkuðu í botn, Snorri hafði gefið pabba diskinn með
sjálfum sér og gestirnir spiluðu hann stundum einum of oft, ég var
að vera geðveik. 
Ég gafst upp korter yfir 2 og fór þá að sofa, en seinustu gestirnir
fóru ekki fyrr en korter yfir 3. Núna angar íbúðin af víni og
bjór..   
Svona var
afmælið hans pabba í stuttu máli... 
»
07.07.2006 18:28:05 / nuna
»
28.06.2006 21:49:18 / nuna
Hæ Sif hér.. nýkomin til
Íslands ! Ég er svo ánægð með að vera komin heim  er alveg í
skýjunum 
Ég er ekkert brún eða neitt (voða
vonsvikin) en ég keypti mér fullt af dóti
og líka fyrir fjölskylduna og sonna.. Ég og mamma dróum pabba
2 í HM og keyptum fyrir 300 og e-ð evrur (30.000) í bæði
skiptin voða ánægð með mín kaup   
Ég keypti mér gg flotta pumaskó (þeir eru ikke eins og mínir) og ég
keypti líka pumaskó fyrir ófæddu frænku mína (Hrafndís systir mín á
hana) vonandi fer hún að koma, ég get ikke beðið..  Við erum
búin að kaupa gg mikið fyrir hana þannig að hún á alveg nóg þegar
hún kemur í heiminn... :*
Ég sá einnig sætan strák á
Spáni, hann var Íslendingur, reyndar 2 árum eldri en ég.. hann var
voða almennilegur, pabbi fílaði hann því hann hélt með Man. Utd.
heheh en hvað um það.... við
hittum fullt af fínu fólki og maður talaði alveg mjög mikið
og hló og skemmti sér vel þegar maður horfði á fótboltann !
hótelið sem við vorum á hét La Colina, þetta var mjög gott
hótel. Hjónin sem áttu þau vorum mjög góð og skemmtileg.
Konan hét Ingrid og hún er sænsk og hún talaði mjög einfalda
ensku sem var mjög gott og hún kunni líka íslensku og Antonio
maðurinn var voða fínn líka, hann var alltaf að grínast og
svona og matseðillinn var meira segja á íslensku og þetta
var mjög góður matur svona heimilismatur, við fórum aldrei út
að borða.. við borðuðum alltaf niðri nema 2 kvöld, þá
borðuðum við upp í herbergi
J Þegar við vorum að fara keyra af
stað ú burtu af hótleinu þá komu þau út og vinkuðu okkur og föðmuðu
okkur líka áður en við fórum upp í rútuna, maður fann fyrir söknuði
Ég mæli með þessu hóteli, þú kynnist voða fínu fólki (það eru
bara Íslendingar þarna fyrir utan starfsfólkið )
  
Ó GUÐ.. Þegar við vorum að
fara í gegnum tollinn á spánskaflugvellinu, var maður að reyna
henda sér í gegn en tollverðirnir stoppuðu hann og ætluðu að draga
hann í burtu en hann henti sér í gólfið og sló verðina og sagði
þeim að láta sig í friði en þegar hann hendi sér
í gólfið heyrðist geðveikur dynkur, öllu fólkinu brá gg
   
Ég er búin að vera horfa á
fótboltann með öllu fólkinu allan tímann 
maður er bara
komin inn í þetta..  en það var svo krúttlegt þegar Ronaldo fór
að gráta þegar hann var tekinn útaf á leiknum Portúgal – Holland, hann meiddist
greyið.. en það var gg krúttlegt :’) og svo er kallinn
minn hann Ronaldhino (held að það er skrifað svona) ég og
systir mín erum hálfgert að rífast um hann hehe en hún á
kærasta svo ég fæ hann þá hahaha    
En þetta var svona e-ð um
Spánarferðina... það er miklu meira að segja frá bara að spurja....
 
Á morgun er ég að fara á Árbæjarsafnið með ömmu minni hlakka
voða til  og svo kemur frænka mín í heimsókn
og það verður pottþétt stuð.. og um helgina gef ég Mundu, Hrólfi og
Eyþóri gjafirnar sínar.. og Tobbu sínar þegar hún kemur heim í
Ágúst og það verður eins gott að hún gefi mér e-ð eins og hún
lofaði hehehe
En bæbæ... muna gestó (ef fólk
fer ennþá inná þessa síðu)
»
13.06.2006 20:32:43 / nuna
Hæhæ....
eins og flestir vita þá er ég að fara til Spánar í nótt.. er að
fara skemmta mér þar í sumar J
Ég fer til Albir og verð þar á hóteli sem er
eiginlega upp í sveit.. mér hlakkar gg til, nema mér finnst
svo leiðinlegt að kveðja L
en ég kveð ikke marga face to face, reyndar bara
ömmu, Hrafndísi, litlu ófæddu stelpuna J, Dóra,
Tobbu og örugglega Eydísi.. og svo sendi ég hinum bara sms..
ég mun sakna allra vina minna.. L
LJ
JL
LJ
J
Ég er byrjuð
í unglingavinnunni, ég vann bara í 2 daga því ég er að fara út. En
það var alveg ágætt, nema krakkar úr Fellaskóla eru líka í Heiðmörk
þar sem ég er, en samt ikke í sama hóp.. Þetta eru reyndar gömlu
bekkjasytkinin mín(Gubbi, Dabbi Þór, Dabbi Árni,Habbi, Sandra A.,
Elvar og ásamt fleirum sem voru ikke með mér í bekk), þau eru svo
óþroskuð ! Það er eins og þau séu að fara í 1.bekk...! í dag, þá
sáu strákarnir önd og Gubbi ætlaði að berja hana með skóflu í
hausinn því Dabbi sagði honum að gera það.. Magga Lena (Margrét)
sagði honum að láta öndina í friði og ég spurði hvort þeir væru
ikke að fara í 10.bekk en ikke 1.bekk. svo fóru þeir að röfla e-ð
um okkur og Sandra A. Varði okkur... Takk (K) svo fórum við bara
vinna aftur, þangað til að rutan kæmi... Þegar ég kom heim fór ég
með mömmu niðri í mjódd í bankann til þess að ná í gjaldeyri fyrir
mig (fékk handklæði með ) og svo fór ég heim í sturtu og fór með
Tobbu út.. ég var e-ð að búa til svona hálfgerða mynd um Tobbu og
hvernig hún verður í framtíðinni... (hún mun örugglega giftast Árna
I og þau munu eignast alla veganna 4 börn. J
) svo fór ég heim að borða og byrjaði að pakka og fór
svo í tölvuna til þess að drepa tímann á meðan ég bíð eftir
Tobbu..
Nú ætla ég að
segja bæ... og sjáumst í sumar mitt fólk.. J
JJ
hafi það gott J
J
bless bless og bæbæ...
OG NÚ ÆTLA ÉG
Í FRÍ TIL SPÁNAR J
JJ
J           
»
19.05.2006 22:39:34 / nuna
»
03.05.2006 20:45:29 / nuna
»
31.03.2006 22:22:25 / nuna
»
22.03.2006 17:54:08 / nuna
nenni ekki að segja mikið um skiðaferðina
svo hérna bara..
- þessi skiðaferð var ömurleg
- vaknaði klukkan hálf 5 eða fyrr meira að segja
fyrstu nóttina

- allir voru brjálaðir

- gat varla haldið mér vakandi á
þriðjudeginum
- það var geggjað kalt
- það var ekki hægt að leigja skíði né fara á
skíði, bara þeir sem voru með skiði
- týndi inniskónum mínum 3x
- týndi úlpunni minni þegar við vorum að taka
til
- fann hana þegar við vorum komin útí
breiðholtsskóla
- týndi belgunum mínum, hann fauk yfir fjall og er
örugglega í Hafnarfirði eða e-ð.
- braut gleraugun hennar Mundu
- Það var að ganga kjaftasaga um
Söru
»
06.03.2006 14:30:36 / nuna
skomm, nú ætla ég að vera með svona
spurningu eða spurningar oki, og ég vil að þig svarið
spurningunum m leið og þið komið inná siðuna. og þið megið
likaskrifa í gestó !! takk fyirir og take care..
 Og nú koma spurningarnar
...!
Hvað heitirðu :
Hvaða kyn ertu :
Hvað ertu gömul/gamall :
Horfiru á idolið :
Með hverjum heldurðu :
Horfiðru á Eurovision forkeppnina :
Með hverjum hélstu :
Kemst Ísland uppúr forkeppninni í Aþenu :
Í hvaða sæti lentum við þá ef lagið kemst uppúr :
Hvað finnst þér um sveittar tær
: Hvort vildir þú hafa :
1. tvískipta tungu
2. axlasíða eyrnasneppla
3. 13 putta
4. samvaxnar tær á báðum fótum
5. hárvöxt á enninu sem ekki er unnt að fjarlægja
Og að lokum nendu 1 - 2 galla af gagnstæða
kyninu(strákur skrifar um stelpu og stelpa skrifar um strák) Oki
bæbæ.. Muna að þið verðið að svasra og kvitta lika í gestó

»
04.03.2006 21:26:53 / nuna
Miðvikudagurinn minn
Skomm, nú ætla ég að fræða ykkur um afmælið
hennar Eydísar sem gerðist á öskudaginn fyrir langa löngu, skomm!
Sá dagur byrjaði með því að ég vaknaði klukkan hálf 11.. Og ég
byrjaði ekki að gera mig til fyrir klukkan hálf 1. Og það var skomm
munda á leiðinni til min. Síðna fór ég að ná í skó og við röltuðum
heim til Eydísar í afmæli hennar. Við lögðum af stað alla leiðina
útí mosfellsdal(helvíti löng leið, ég var að drepast í rassinum á
leiðinni ) um svona hláf 2 eða e-ð solleiðis. Þegar við komum
þangað loksins fórum við á hestbak í tvo tima. Og ég sá fallegasta
gaur í heimi, hann var að vísu eldri en ég, 2árum eða svo, og hann
heitir Pétur. á mynd af honum við fórum i
singstar en ekki ég að visu og fengum helviti stóra partý pizzu..
Og svo fórum við á leikinn ÍR – Þór og fórum síðan á æfingu.. Eydís
var að drepast allan tímann á æfingu og hún var að pína sig allan
helvitis timann utaf Kidda hann er klikk gaur.. Nei marr má ekki
segja sonna e'ha ekki... En nuna nenni ég ekki að segja meira um
þennan dag en fyrir neðan er um föstudaginn 
Föstudagurinn
minn
Skomm, þetta byrjaði þannig að ég vaknaði um
morguninn eins og vanalega.. Ég var bara að tjilla allan daginn
eiginlega. Nema ég færði skrifborðið úr tölvuherberginu og
setti það inní mitt herbergi.. En það gerðist ekkert merkilegt nema
idolið. Ég hringdi í Tobbu þegar mamma sagði að ég mætti taka e-n
með mer á idolið því að pabbi fékk auka miða. Hún sagði nátturulega
,,JÁ " Og svo fór ég í hesth´suið á hestbak og gefa og svona,
þegar ég kom heim fór ég í sturtu og fékk mer að borða. Ég tók mig
til klukkan korter í 7. Ég fór í Levis buxurnar mínar og bolinn sem
á stóð ,,HVÍTI KÓNGURINN" Snorri er skomm kallaður það Við
sóttum Tobbu um 7 leytið og á leiðinn fórum við og keyptum okkur
nammi. Þegar við komum þangað þá biðu pabbi og pabbi hans snorra
eftir okkur. Við létum Tobbu fá alveg eins bol og ég, því það voru
allir í svoan. VIð fengum eiginhandaráritun frá Snorra audda,
Alexander og Ingó. Og pabbi ætlar að´biðja Snorra um að láta alla
skrifa á bolinn minn Síðna þegar idolið var búið keyrðum við
Tobu heim og ég var orðin svo þreytt að ég fór strax að sofa. en ég
fattaði síðan að ég hafi gleymt að fá simann minn hjá Tobbu

Laugardagurinn minn
Í dag vaknaði ég klukkan 9 útaf Amor.. Þannig
ég horfði bara á barnatimann. Síðna fór mamma og pabbi að versla um
12 og þá fór ég að ryksuga stigaganginn. Þegar ég var búin að
þvi komu mamma og pabbi heim, ég fekk mér að borða og byrjaði siðan
að klæða mig í reiðfötin. Við mamma fórum útí hesthús um svona
h´laf 3 leytið og fórum þá í klukkutima reiðtúr. Við fórum siðan
heim. og ég fór í sturtu og horfði siðan á leikinn með ÍBV - Fram..
Síðna fór ég út með Mundu en við fórum inná ganginn hjá henni vegna
þess að það var svo kalt. Við vorum bara að flippa á ganginum
hennar.. Síðan fór ég heim að borða kvöldmat og talaði við frænku
mina í simann í vsona ca. hálftima eða minna. og fór síðan á netið
og er búin að vera siðan e núna segi ég sko bæ. ég er búin að
vera dugleg að blogga alveg geðveikt. en BÆBÆ
»
25.02.2006 21:36:41 / nuna
Jæja, nú ætla ég að segja frá sunnudeginum
mínum!
Oki.. ! Ég vaknaði klukkan 05:00 í morgun til
þess að bera út og þegar við vorum að setja blöðin í bílinn kom
maður sem var fullr og spurði hvað klukkan væri og við sögðum honum
það og hann sgaði þá: ,,Í alvöru, ég var að hóta drepa ömmu og afa,
því ég hélt að það væri kvöld." Og mamma sagði. ,,það má ekki" Og
hann sagði síðan bæ. Og við héltum af stað að bera út, þegar ég var
að ná í blöð úr kerrunni kar ég mig og það blæddi svo mikið, ég gat
ekki náð í plástur ég þurfti að bíða geggjað lengi því að bílllinn
var langt í burtu. Við vorum í 2 tíma, því pabbi var ekki og ég
kann ekki á þessi svæði. Við fórum í bakaríið á leiðinni heim og ég
var að sofna í bílnum. þegar við komum heim fékk ég mér að borða
því ég v ar að deyja úr hungri og svo fó ég að sofa og svaf til
12:00. Þegar ég vaknaði kveikti ég á tölvunni og horfði á friends í
tölvunni og borðaði rúmstykki og svala. Síðan var ég bara að klára
eina afmælisgjöf á meðan ég beið eftir mömmu. Síðan fórum við uppí
hesthús um 16:00 og fórum kikrjugarðshringinn og fórum síðan að
moka og gefa. Eftir það fórum við heim, þá fór ég í sturtu og
kláraði afmælisgjöfina alveg. Svo loksins kom matur og ég var að
borða bjúgur á meðan ég var að horfa á stelpurnar.. Síðan fór ég í
tölvuna að laga á síðunni minni og tala við fólk á msn og núna er
ég að skirfa þetta rugl.
Og á morgun er ég að fara með mömmu í
Smárann til að finna bol og skó fyrir árshátíðina,
seíðan fér eg útí skóla að hjálpa Hönnu Báru að þjálfa og svo fer
ég útí hesthús og tala kannski við Mundu ef ég get og ef hún
getur Og bæbæ i bili 
»
Síður: 1 2 3
|
|